Sjáðu bara
Erindi eitt
Þú bíður eftir að ég segi réttu orðin
En þau standa í mér
Það er svo skrítið því að oftast er ég kominn
Alveg lengt framúr mér
Pre
og ég hugsa’ekki um annað, ég skal ná að sanna mig
Fyrir þér
Ég er brotinn og breyskur, hef gert margt svo vitlaust en
Sem betur fer
Viðlag
Ég gerði eitthvað rétt, sjáðu bara
Hafðist fyrir rest, tók sinn tíma
Og ég veit og ég veit bara er ég horfi á þig
að ég gerði eitthvað rétt
fyrst þú ert hérna
Erindi tvö
Þú brosir til mín trúi varla mínum augum
Ertu raunveruleg
Þér tekst að gera gott úr öllum mínum draugum sem að
Elta mig hvert sem er
Pre
Ég er ómögulegur á svo marga vegu en
sem betur fer
Viðlag
Ég gerði eitthvað rétt, sjáðu bara
Hafðist fyrir rest, tók sinn tíma
Og ég veit og ég veit bara er ég horfi á þig
að ég gerði eitthvað rétt
fyrst þú ert hérna
Outro
Sjáðu bara
Sjáðu bara
Og ég veit og ég veit
Bara er ég horfi á þig að
Ég gerði eitthvað rétt
Sjáðu bara