Sveitin mín (19Þ5)
Erindi eitt
Setjum hann í lága drifið
Keyrum yfir heiðina
ég skal hlaupa og opna hliðið
Smölum niðrí í réttina
—
segðu mér allar sögurnar
um böllin í denn
og gömlu góðu tímanna
Hvernig væri það?
Erindi tvö
framhjá stíflunni og meðfram ánni
Elti niður slóðina
eftir heimreiðinni inn á hlaðið
Kyssi ömmu á kinnina
—
Svo segðu mér allar sögurnar
Svo skrítið að hugsa til þess
þú munt ekki alltaf vera þar
Með pönnsunar
Viðlag
Gemmér kvöldkaffi, ræðum heimsmálin
Hvernig er veðrið?
Rjómi’á bláberin, sama ættfræðin
Enn eitt árið
-
Ég vil aldrei þurfa fara
Allt sem ég þarf það er hérna
Þú ert drauma líf, þú ert sveitin mín
Alltaf hjá mér
Erindi þrjú
Ríðum inn í Laxárdalinn, kexpakki í nestinu
Flýtum okkur hægt með hraði, gleymum fjaðrafokinu
Ég segi þér allar sögurnar
Nei þú mátt engu missa af
En þannig er nú það
Viðlag
Gemmér kvöldkaffi, ræðum heimsmálin
Hvernig er veðrið?
Rjómi’á bláberin, sama ættfræðin
Enn eitt árið
-
Ég vil aldrei þurfa fara
Allt sem ég þarf það er hérna
Þú ert drauma líf, þú ert sveitin mín
Alltaf hjá mér
Brú
ooohhhhh
Ooohhhhh
Viðlag
Ég vil aldrei þurfa fara
Allt sem ég þarf það er hérna
Þú ert drauma líf, þú ert sveitin mín
Alltaf hjá mér
outro
Einn daginn mun líta við og skoða allar myndirnar
Þjappa öllum hlið við hlið og segja allar sögurnar