Ágúst á ferðinni
Ágúst Brynjarsson

Tónleikaferð

Ágúst á ferðinni

Tónlistardagur fyrir alla bæjarbúa. Í sumar hyggst Ágúst Brynjarsson fara í tónleikaferð um landið undir heitinu Ágúst á ferðinni, með það að markmiði að heimsækja sveitarfélög víðsvegar um landið og halda heildstæða menningarupplifun fyrir alla aldurshópa.

Verkefni: Tónlistardagur fyrir samfélagið
Innihald: Skólaheimsóknir, tónlistarstundir og kvöldtónleikar með hljómsveit
Markmið: Að færa lifandi íslenska tónlist til fólks um allt land

Kynning

Góðan dag, ég heiti Ágúst Brynjarsson. Í sumar er ég að fara af stað í tónleikaferð um landið undir heitinu Ágúst á ferðinni, og mig langar að koma til í þitt sveitarfélag.

Í lok mars var það tilkynnt að ég er að taka við sem brekkusöngvarinn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, sem er einstakur heiður og stórt hlutverk í íslensku menningarlífi. Ásamt því er ég að gefa út plötu í lok apríl mánaðar.

Mig langar að nýta þetta tækifæri til að fara með tónlistina mína og nýja hlutverkið mitt sem brekkusöngvarinn út um allt land og halda menningardag fyrir bæjarfélög víðsvegar um landið, ásamt hljómsveit.

Ég er sjálfur fæddur og uppalinn á Húsavík og man vel eftir þeim örfáu tónleikum sem ég fór á sem lítill strákur heima. Það var alls ekki algengt að tónlistarfólk sæi sér hag í því að koma í minni bæjarfélögin, og því hefur það alltaf verið draumur minn að fá að hitta og spila fyrir alla aldurshópa á stöðum sem minna á mína eigin æsku og unglingsár. Þess vegna vona ég innilega að þetta sé eitthvað sem við getum unnið saman.

Hugmyndin

Ágúst Brynjarsson á kynningarmynd frá Vísi
Verkefnið er hugsað sem heildstæð dagskrá þar sem tónlistin mætir fólki á öllum aldri yfir einn og sama daginn.

Dagurinn er settur upp sem heildstæð upplifun fyrir alla aldurshópa. Hugmyndin er að tónlistin komi inn í daglegt samfélagslíf bæjarins og endi síðan með opnum kvöldtónleikum þar sem allur bærinn getur komið saman.

Dagskráin gæti litið svona út

  • Tónlistarstund í leikskóla
  • Tónlistarstund í grunnskóla
  • Tónlistarstund fyrir eldri borgara / þjónustukjarna
  • Ókeypis fjölskyldutónleikar með hljómsveit um kvöldið

Tónleikarnir

Ágúst og Diljá á Kótelettunni
Kvöldtónleikarnir eru hugsaðir sem sameiginleg stund fyrir bæjarbúa, í anda brekkusöngs og íslenskrar samveru.

Kvöldtónleikarnir yrðu byggðir upp bæði á íslenskum lögum sem fólk þekkir og getur sungið með, í anda þess sem margir þekkja úr brekkusöngnum, og jafnframt á mínum eigin lögum af nýrri plötu.

Markmiðið er að skapa stemningu þar sem allur bærinn getur komið saman og sungið með, en um leið fengið að heyra ný lög og sögurnar á bak við þau.

Markmiðið er að skapa stemningu þar sem allur bærinn getur komið saman og sungið með.

Ágúst á ferðinni — efni fyrir samfélagsmiðla

Ágúst á sviði
Samhliða tónleikadeginum verður efni tekið upp yfir sumarið þar sem hvert sveitarfélag fær sitt eigið rými og sýnileika.

Samhliða tónlistardeginum með ykkur er ég að taka upp þætti í allt sumar, þar sem ég ferðast um landið og heimsæki mismunandi bæjarfélög. Hver bær verður þannig í aðalhlutverki í sínum eigin þætti.

Í þáttunum verður meðal annars

  • Tónlistin
  • Stemningin á tónleikunum
  • Bærinn sjálfur
  • Það sem gerir staðinn sérstakan

Þessir þættir verða birtir á samfélagsmiðlum mínum og stefnt er að því að efni tengt verkefninu verði einnig sýnt í gegnum miðla tengda RÚV. Þetta er því líka tækifæri fyrir ykkur til að fá jákvæða og skemmtilega kynningu.

Markmið með tónlistar- og menningardeginum

  • Að færa lifandi íslenska tónlist til fólks um allt land
  • Að skapa sameiginlega upplifun fyrir samfélagið
  • Að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning með hljómsveit
  • Að hitta krakka og unglinga með drauma eins og ég var með, og verða vonandi innblástur fyrir þá sem vilja ná markmiðum sínum

Hvað er innifalið

  • Tónlistaruppákoma fyrir leikskóla
  • Tónlistaruppákoma fyrir grunnskóla
  • Tónlistaruppákoma fyrir eldri borgara / elliheimili / þjónustukjarna
  • Kvöldtónleikar með hljómsveit fyrir alla bæjarbúa
  • Hljóðkerfi og allt sem tengist flutningi á tónleikunum og hinum smærri uppákomum
  • Ferðakostnaður

Kostnaður

350.000 kr.

Heildarverð fyrir menningardaginn er sett sem mjög viðráðanlegt verð miðað við umfang og alla dagskrárliði dagsins, þar sem dagurinn inniheldur tónlist fyrir alla aldurshópa og kvöldtónleika með hljómsveit fyrir bæjarbúa.

Markmiðið með verkefninu er að nýta þetta tækifæri sem ég hef fengið — með útgáfu nýrrar plötu og nýju hlutverki mínu sem brekkusöngvarinn á Þjóðhátíð — til að ferðast um landið, hitta börn og ungmenni, skapa jákvæða upplifun í bæjarfélögum og vonandi veita innblástur og hvatningu.

Ég vil halda þessu á verði sem gerir sveitarfélögum raunhæft að taka þátt og í mörgum tilvikum er einnig hægt að byggja verkefnið upp í samstarfi við fyrirtæki í sveitarfélaginu.

Samstarf við fyrirtæki í sveitarfélaginu

Það sem hefur reynst þessu verkefni vel, og er sú leið sem ég er að framkvæma þennan dag í nokkrum sveitarfélögum, er sá möguleiki að byggja verkefnið upp sem samstarf við fyrirtæki í sveitarfélaginu. Hugmyndin er sú að fyrirtæki í bænum taki þátt sem styrktaraðilar að einhverju eða öllu leyti og hjálpi til við að gera daginn að veruleika fyrir samfélagið.

Þau sveitarfélög sem nú þegar eru staðfest hafa verið að fá fyrirtæki til liðs við sig og skipta þessum 350 þúsund krónum á milli sín, eða fengið fyrirtæki til að styrkja daginn að öllu leyti. Ef þetta væri leiðin sem þið telduð líklegri til árangurs væri hægt að útfæra daginn þannig, en að sjálfsögðu er líka hægt að gera þetta eingöngu í samstarfi við sveitarfélagið sjálft ef þið hafið tök á því.

Hvernig samstarfið virkar

Sveitarfélagið getur verið tengiliður minn og aðstoðað mig við að fá fyrirtæki til liðs við verkefnið, ásamt því að aðstoða með skipulagningu á deginum sjálfum, skólaheimsóknum og öðrum heimsóknum. Verkefnið verður þannig samstarf sveitarfélags, fyrirtækis eða fyrirtækja og Ágústar.

Hvað fyrirtækin fá út úr þessu

  • Sýnileika í sínu nærumhverfi
  • Jákvæða tengingu við samfélagið
  • Tækifæri til að styðja menningu og viðburði fyrir íbúa
  • Logo á kynningarefni
  • Nefningu á tónleikum
  • Kynningu á samfélagsmiðlum
  • Möguleika á að tengjast ákveðnum hluta dagsins, til dæmis „Tónlistarstund í leikskóla í boði [fyrirtæki]“ eða „Kvöldtónleikar í samstarfi við [fyrirtæki]“

Óskir frá sveitarfélaginu / samstarfsaðilum

  • Aðgangur að sal fyrir kvöldtónleika, svo sem félagsheimili, íþróttahúsi eða menningarhúsi
  • Aðstoð við skipulagningu á heimsóknum í leikskóla, grunnskóla og þjónustukjarna / til eldri borgara
  • Gisting
  • Kvöldmatur
  • Aðstoð við kynningu innan sveitarfélagsins og dreifingu upplýsinga til íbúa

Næstu skref

Ég hlakka til að heyra frá ykkur og þakka ykkur kærlega fyrir að gefa ykkur tíma til að skoða þetta. Það væri gaman að ræða nánar mögulega dagsetningu í sumar og útfærslu ef þið eruð til í að skoða þetta nánar með mér.

Bestu kveðjur, Ágúst
Ágúst Brynjarsson
Sími: 8682278
Heimasíða: agustmusic.is
Instagram: @agustbrynjars






This email was sent to *|EMAIL|*
why did I get this?    unsubscribe from this list    update subscription preferences
|LIST:ADDRESSLINE|