Ágúst
ÁGÚST

UM ÁGÚST

Ágúst Þór Brynjarsson er söngvari, lagahöfundur og tónlistarmaður frá Húsavík sem hefur á skömmum tíma fest sig í sessi sem ein af eftirtektarverðari röddum ungu kynslóðarinnar í íslensku tónlistarlífi.

Tónlistin hefur fylgt Ágústi frá unga aldri, en leiðin að sviðinu var ekki bein lína. Hann átti sér farsælan feril í fótbolta, er uppalinn Völsungur og lék meðal annars með ÍR, Þór og Magna, áður en tónlistin tók yfir sem hans stærsta köllun. Í upphafi árs 2024 tók hann stóra ákvörðun: að hætta í föstu starfi og elta tónlistina af fullum krafti.

Stuttu síðar hófst nýrr kafli þegar hann steig inn í Stuðlabandið og ferðaðist með hljómsveitinni um landið, nánast hverja einustu helgi, þar sem hann safnaði dýrmætri reynslu á stórum sviðum og fyrir fjölbreyttum áhorfendahópum.

Árið 2025 kynntist þjóðin Ágústi betur þegar hann tók þátt í Söngvakeppni RÚV með laginu "Eins og þú" / "Like You". Lagið samdi hann ásamt Hákoni Guðna Hjartarsyni og Halldóri Gunnari Pálssyni og þátttakan markaði stórt skref í sólóferli hans.

Árið 2026 kom svohin fyrsta breiðskífa, Hjartað á milljón, út á sumardaginn fyrsta, 23. apríl. Platan geymir ellefu lög og sýnir Ágúst sem persónulegan, opinn og melódískan lagahöfund — listamann sem sækir efnivið í fjölskyldu, ást, heimahaga, drauma og þá tilfinningu að vera á fullri ferð en vilja samt halda í það sem skiptir mestu máli.

Sumarið 2026 tekur Ágúst við einu stærsta og sögulegasta hlutverki íslenskrar tónlistarhefðar þegar hann stýrir brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.

Ágúst er Húsvíkingur í hjartanu. Heimabærinn, fjölskyldan og norðlenska rótin eru ekki bara bakgrunnur í sögunni hans, heldur hluti af tónlistinni sjálfri.